Á landsmóti Skotíþróttasambands Íslands í Þrístöðu-riffli af 50 metra færi, sem fram fór í Egilshöllinni í dag, setti Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur nýtt Íslandsmet í kvennaflokki með 1.095 stig.
Í öðru sæti varð Bára Einarsdóttir úr Skotíþróttafélagi Kópavogs með 1.017 stig og í þriðja sæti í kvennaflokki varð Guðrún Hafberg úr Skotíþróttafélagi Kópavogs með 983 stig.
Í karlaflokki sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur með 1.090 stig, annar varð Leifur Bremnes úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar með 995 stig í þriðja sæti hafnaði Þorsteinn Bjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 957 stig.