Serbinn Novak Djokovic, efsti maður heimslistans í tennis, tryggði sér í dag sæti í þriðju umferð á opna ástralska meistaramótinu í tennis.
Djokovic vann Frakkann Jo-Wilfried Tsonga í þremur settum, 6:3, 7:5 og 6:4, en Djokovic vann Frakkann í úrslitum á opna ástralska meistaramótinu árið 2008. Það var fyrsti risatitill Djokovic á ferlinum en þeir eru í dag orðnir 14.
Andstæðingur Djokovic í þriðju umferðinni verður Kanadamaðurinn Denis Shapovalov.