Íslenska U20 ára landslið karla í íshokkíi leikur ekki um verðlaun í C-deild heimsmeistaramótsins. Þetta varð ljóst eftir 4:2-tap fyrir Tyrklandi í lokaleik liðsins í A-riðli í Skautahöll Reykjavíkur í dag. Ísland leikur þess í stað um 5.-8. sæti mótsins.
Tyrkneska liðið fór betur af stað og skapaði sér nokkuð af færum áður en Unnar Rúnarsson þurfti að fara af velli í tvær mínútur vegna mistaka við skiptingu íslenska liðsins. Tyrkland nýtti sér liðsmuninn um leið og skoraði fyrsta mark leiksins á áttundu mínútu en það gerði Hakan Salt.
Íslenska liðið var fljótt að svara því aðeins þremur mínútum síðar var staðan orðin 1:1. Heiðar Kristveigarson skoraði þá með glæsilegu skoti úr þröngu færi og var staðan eftir fyrsta leikhlutann jöfn.
Annar leikurinn var mjög svipaður. Hakan Salt kom Tyrkjum í 2:1 á 24. mínútu en í þetta skiptið tók það Ísland aðeins mínútu að jafna og aftur var það Heiðar Kristveigarson. Markið kom þegar Ísland var manni færra. Staðan eftir annan leikhluta var því 2:2.
Tyrkir komust yfir í þriðja sinn á 47. mínútu er Firat Afsin tók frákast og skoraði á meðan íslenska liðið var manni færra. Íslenska liðið sótti án afláts það sem eftir lifði leiks en þrátt fyrir það voru það Tyrkir sem skoruðu síðasta markið í blálokin og þar við sat.