Svisslendingurinn Roger Federer mun ekki ná að verja titil sinn á Opna ástralska meistaramótinu í tennis en hann var sleginn úr leik í 16-manna úrslitum mótsins í gær.
Federer mætti Grikkjanum Stefanos Tsitsipas og tapaði í fjórum settum. Federer vann fyrsta settið eftir upphækkun en Tsitsipas vann svo þrjú sett í röð og leikinn 3:1. Þetta er aðeins í annað sinn á síðustu 16 árum sem Federer nær ekki að komast í átta manna úrslit á þessu móti, sem hann hefur unnið sex sinnum á ferlinum.
„Ég er hamingjusamasti maður á jörðinni einmitt núna, ég get ekki lýst þessu,“ sagði Tsitspas, sem er aðeins tvítugur, eftir sigurinn. „Ég var að vinna átrúnaðargoðið mitt.“