Gullmerki ÍSÍ hafa verið á lofti síðustu dagana. Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, var sæmdur gullmerkinu á körfuboltaþingi um helgina.
Á þingi HSH, Héraðssambands Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, sem haldið var í Stykkishólmi, fengu frændur gullmerki ÍSÍ: Gunnar Svanlaugsson og Ríkharður Hrafnkelsson. Lesendur Morgunblaðsins kannast vel við Ríkharð sem skrifaði árum saman um körfuboltaleiki fyrir Morgunblaðið.