Rafn Kumar Bonifacius úr úr Hafna- og Mjúkboltafélagi Reykajvíkur og Anna Soffía Grönholm, úr Tennisfélagi Kópavogs, vörðu Íslandsmeistaratitla sína í tennis innanhúss en Íslandsmótinu lauk í tennishöllinni í Kópavogi í gær.
Rafn Kumar mætti föður sínum, Raj Bonifacius, í úrslitaleiknum í karlaflokki og hafði Rafn betur í tveimur settum. Hann vann það fyrra 6:3 og það seinna 6:0.
Feðgarnir léku svo saman í tvíliðaleiknum og unnu þeir Björgvin Atla Júlíusson, Víkingi, og Brynjar Sanne Engilbertsson, úr BH, 9:0 í úrslitaleik.
Anna Soffía bar sigurorð af Soffíu Sóley Jónasdóttur, Tennisfélagi Kópavogs, í tveimur settum 6:1 og 6:2. Þær unnu saman í tvíliðaleik á móti Ingibjörgu Önnu Hjartardóttur úr BH, og Selma Dagmar Óskarsdóttur úr TFK, 9:2.
Eva Diljá Arnþórsdóttir, Víkingi, og Björgvin Atli höfnuðu í þriðja sæti í meistaraflokk kvenna og karla í einliðaleik.