Keníamaðurinn Abraham Kiptum hefur verið úrskurðaður í fjögurra ára bann eftir að hann féll á lyfjaprófi. Kiptum átti heimsmet í hálfu maraþoni, þar til landi hans Geoffrey Kamworor bætti það fyrir tveimur mánuðum.
Kiptum setti heimsmet sitt í október á síðasta ári, en hefur verið í tímabundnu banni síðan í apríl á þessu ári á meðan rannsókn málsins stóð yfir.
Allur árangur Kiptum frá 13. október á síðasta ári hefur verið þurrkaður út, m.a heimsmetið hans.