Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili er efstur eftir tvo hringi af þremur á Goðamótinu sem leikið er á Jaðarsvelli en mótinu lýkur á morgun. Goðamóti er það sjöunda og síðasta á Eimskipsmótaröð GSÍ.
Gísli lék í dag á 141 höggi eða á einu höggi undir pari. Fyrri hringinn lék hann á 70 höggum en þann síðari á 71 höggi. Jafnir í öðru til þriðja sæti, tveimur höggum á eftir Gísla, er þeir Andri Már Óskarsson úr Golfklúbbi Hellu og Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili.
1. sæti Gísli Sveinbergsson GK 70/71 = 141 -1
2.-3. sæti Andri Már Óskarsson GHR 70/73 = 143 +1
2.-3. sæti Kristján Þór Einarsson GKJ 73/70 = 143 +1