Sveiflan er öll að koma til hjá Tiger Woods sem er í 11 sæti á fjórum höggum undir pari á Greenbrier Classic mótinu í golfi.
Tiger átti arfaslakt mót á Opna bandaríska meistaramótinu í júní og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Eftir mótið sagðist hann vera að vinna að laga golfsveifluna sína og að hann myndi koma sterkari til leiks á næsta móti.
Raunin virðist vera sú því sveiflan var mun betri hjá Tiger í dag og hún skilaði góðum úrslitum. Þetta var besti dagur Tiger á PGA mótaröðinni síðan í mars árið 2014.