Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari úr GR, lék á 71 höggi eða á höggi undir pari á Volvik Championship á LPGA-mótaröðinni bandarísku en mótið fer fram í Detroit í Michiganríki. Ólafía er samtals á fjórum höggum undir pari í mótinu og fer örugglega í gegnum niðurskurð keppenda.
Er þetta í þriðja skiptið sem Ólafía kemst í gegnum niðurskurðinn í þessari sterkustu mótaröð heims en einungis þeir kylfingar sem komast í gegnum niðurskurðinn í hverju móti komast í verðlaunaféð sem í boði er.
Á ýmsu gekk hjá Ólafíu á hringnum í dag. Ólafía hóf leik á 10. teig og á fyrri níu holunum fékk hún þrjá fugla og einn skolla. Paraði rest. Á seinni níu holunum kom slæmur kafli þar sem hún fékk þrjá skolla í röð. Fuglarnir urðu ekki fleiri en afskaplega ljúfur örn skilaði sér á 9. og síðustu holunni sem kom henni undir parið í dag. Ekki algengt að kylfingar fái örn á par 4 holu og spurning hvort okkar kona hafi sett boltann í af nokkru færi vegna þess að í upplýsingum um völlinn segir að 9. holan sé löng par 4.
Ólafía er í 31. sæti en hún var í 23. sæti eftir gærdaginn. Hún er á sama skori og til dæmis Lexí Thompson sem sigraði á LPGA-mótinu í síðustu viku á samtals 20 höggum undir pari. Efstu kylfingarnir eru á 10 höggum undir pari eða sex höggum á undan Ólafíu.