Létt var yfir Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur þegar hún mætti í viðtal fyrir íslenska fjölmiðla í Detroit í Michigan í kvöld.
Ólafía lék í kvöld á 71 höggi og er samtals á fjórum höggum undir pari á Volvik Championship mótinu á LPGA-mótaröðinni.
Ólafía komst í gegnum niðurskurð keppenda og leikur því á morgun og sunnudag. Hún tryggði sig endanlega áfram með því að fá örn á síðustu holunni sem er löng par 4 eftir ævintýralegt högg.
Í meðfylgjandi myndskeiði er að finna viðtalið við Ólafíu.