Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 41. til 53. sæti fyrir lokahringinn á Walmart-mótinu í LPGA-mótaröðinni í Arkansas sem leikinn er í dag.
Ólafía lauk keppni snemma í gær og var þá á þremur höggum undir pari samanlagt. Þótt margar ættu þá eftir að ljúka hringnum var aldrei vafi á því að hún kæmist í gegnum niðurskurðinn. Að lokum komust 74 kylfingar áfram, allar sem voru á einu höggi undir pari eða betra skori.
Frábær spilamennska Ólafíu í Arkansas.
Fjöldi kylfinga er á fjórum og fimm höggum undir pari og Ólafía gæti því með góðri spilamennsku í dag komist nærri sínu besta í mótaröðinni. Lengst náði hún í Ástralíu snemma á tímabilinu þegar hún endaði þar í 30. sæti.
Ólafía hefur keppni í dag kl. 14.50 að íslenskum tíma og fylgst verður með gengi hennar hér á mbl.is.