Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari vallarins þegar hún spilaði sinn þriðja hring í dag á Tour Championship-mótinu, lokamóti LPGA-mótaraðarinnar í golfi í dag, en mótið fer fram í Flórída í Bandaríkjunum.
Ólafía Þórunn lék fyrsta hringinn á 70 höggum á föstudaginn og annan hringinn á 74 höggum í gær og var samtals á pari eftir fyrstu tvo hringina. Ólafía Þórunn var í 44. sæti á mótinu fyrir þriðja hringinn í dag.
Ólafía Þórunn lék afar stöðugt golf framan af í dag, en hún spilaði fyrstu tíu holur sínar á þriðja hringnum á pari vallarins. Nokkuð seig á ógæfuhliðina á seinni helmingi hringsins, en hún fékk fjóra skolla og fimm pör á seinni helmingnum.
Ólafía Þórunn lék því þriðja hringinn á samtals 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari vallarins. Ólafía Þórunn er þar af leiðandi í 59. - 63. sæti mótsins fyrir lokahring mótsins sem leikinn verður á morgun.