Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli á sínu fyrsta tímabili í LPGA-mótaröðinni, en athyglin hefur stundum verið meiri en búast mætti við ef svo má að orði komast.
Ólafía var í eldlínunni á lokamóti mótaraðarinnar sem lauk í dag og á Twitter-síðu sinni greinir hún frá því að aðdáendur hafi stöðvað hana og beðið um eiginhandaráritun. Það hékk þó eitt á spýtunni – aðdáendurnir ætluðu alls ekki að ræða við hana heldur Lexi Thompson.
„Gaman að geta gert dag fólks betri: „Takk fyrir Lexi, getum við tekið sjálfu? Geturðu gefið mér eiginhandaráritun.“ Þetta er aðeins í 10. sinn sem þetta gerist í ár. Fólk heldur að ég sé Lexi,“ skrifar Ólafía á Twitter-síðu sinni.
Thompson er einn besti kvenkylfingur í heimi og varð meðal annars í öðru sæti á lokamótinu um helgina. Þá stóð hún uppi sem sigurvegari í stigakeppni LPGA-mótaraðarinnar í ár.
Glad I can make some people’s day “omg thank you so much @Lexi !!! Can we get a selfie? Can you sign this?!” Only about the 10th time that happens this year #PeopleThinkImLexi
— Olafia Kristinsd. (@olafiakri) November 19, 2017