Axel Bóasson lék á 72 höggum eða einu höggi yfir pari á fyrsta hringnum á Barclays-mótinu í golfi í Kenía en þetta er fyrsta mótið í Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili.
Axel fékk skolla á síðustu tveimur holunum en alls fékk hann fimm skolla á hringnum og fimm fugla. Axel er sem stendur í 73.-96. sæti en ekki hafa allir kylfingar lokið keppni í dag.
Fyrr í dag lék Birgir Leifur Hafþórsson fyrsta hringinn á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari og er í 96.-116. sæti.
Bæði Axel og Birgir Leifur þurfa að gera betur á morgun ætli þeir að sleppa í gegnum niðurskurðinn.