Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir náði ekki að halda uptekknum hætti á Lalla Meryem-mótinu í golfi sem fram fer í Marokkó. Mótið er hluti af LET-mótaröðinni. Valdís lék fyrsta hringinn í gær á 71 höggi eða einu höggi undir pari og var á meðal efstu manna. Í dag lék hún hins vegar á 79 höggum, eða sjö höggum yfir pari og er hún samanlagt á sex höggum yfir pari vallarins.
Valdís fékk tvöfaldan skolla strax á fyrstu holu og fékk hún alls sex skolla á hringnum. Valdís fékk aðeins einn fugl og tíu pör.
Þrátt fyrir slakan hring í dag fer Valdís í gegnum niðurskurðinn og leikur þriðja hring mótsins á morgun.