Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á Indy Women in Tech-mótinu í LPGA-mótaröðinni eftir tvo hringi. Hún lék hringina tvo á samanlagt einu höggi undir pari og var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Ólafía lék á 71 höggi, einu höggi undir pari á fyrri hringnum í gær og 72 höggum, eða á pari, í dag. Hún fékk tvo fugla, tvo skolla og 14 pör á holunum 18 í dag.
Sem stendur er Sung Hyun Park frá Suður-Kóreu og Lizette Salas frá Bandaríkjunum jafnar í efsta sæti á tólf höggum undir pari.