Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi úr Keili, lék fyrsta hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í gær á einu höggi yfir pari en mótið er haldið í Marokkó.
Guðrún Brá lék hringinn á 73 höggum en hún fékk einn fugl og tvo skolla á hringnum. Hún er í 42.-51. sæti.
Mótið fer fram hjá Amelkis-golfklúbbnum í Marrakech í Marokkó og eru spilaðir fimm hringir eða 90 holur áður en úr því fæst skorið hvaða kylfingar fá keppnisrétt í Evrópumótaröðinni árið 2019. 115 kylfingar keppa í mótinu og leika fjóra hringi til að byrja með á tveimur völlum, tvo hringi á hvorum velli. Þá verður keppendafjöldi skorinn niður og efstu sextíu leika einn hring til viðbótar.
Fimm efstu kylfingarnir fá fullan keppnisrétt í mótaröðinni og ættu að komast inn í flest ef ekki öll mót. Kylfingarnir í sætum 6 - 25 komast einnig inn í mótaröðina en verða aftar í forgangsröðinni.