Fer upp um 16 sæti á heimslistanum

Shane Lowry með sigurlaun sín eftir The Open.
Shane Lowry með sigurlaun sín eftir The Open. AFP

Írski kylfingurinn Shane Lowry mun taka stórt stökk þegar næsti heimslisti í golfi verður kynntur eftir helgi.

Lowry vann sitt fyrsta risamót í dag þegar hann fagnaði sigri á hinu sögufræga The Open-meistaramóti, en hann vann það með sex högga forskoti. Fyrir mótið var hann í 33. sæti heimslistans en mun sitja í því 17. á nýjum lista.

Lowry mun aldrei hafa komist svo ofarlega áður á ferlinum, en hæst komst hann í 18. sætið árið 2016. Hann hefur hins vegar tekið dýfu eftir það og var til að mynda í 75. sæti á listanum undir lok síðasta árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert