Füchse Berlín, liðið sem Dagur Sigurðsson þjálfar og stýrði til sigur í bikarkeppninni um síðustu helgi, vann Gummersbach, 27:22, á heimavelli í dag í þýsku 1. deildinni í handknattleik.
Berlínarrefirnir voru með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Þeir eru sem fyrr í fimmta sæti deildarinnar, nú með 40 stig þegar fimm umferðir eru eftir, og níu stigum á eftir toppliðunum Rhein-Neckar Löwen og Kiel.