ÍR hafði betur gegn Víkingi, 37:29, á Reykjavíkurmóti karla í handknattleik en liðin áttust við í Víkinni í kvöld.
ÍR-ingar voru þremur mörkum yfir eftir fyrri hálfleikin, 18:15. Þegar skammt var til leikslok var munurinn enn þrjú mörk, 30:27, en ÍR-ingar voru sterkari á endasprettinum og unnu átta marka sigur.