Holger Glandorf, leikmaður Flensburgar í þýsku 1. deildinni í handbolta hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér framar í þýska landsliðið í handbolta. Dagur Sigurðsson nýráðinn landsliðsþjálfari Þýskalands mun hafa rætt við Glandorf um helgina um framtíð hans með landsliðinu og þá hafi Glandorf tilkynnt um ákvörðun sína.
Glandorf á að baki 167 landsleiki fyrir þýska landsliðið og hefur skorað 576 mörk. Hann lék sinn fyrsta landsleik árið 2003 og varð meðal annars heimsmeistari með Þýskalandi á heimavelli árið 2007.
Á heimasíðu þýska handknattleikssambandsins er Glandorf þökkuð þjónustan fyrir landsliðið í gegnum tíðina.