„Það var svolítið sérstakt að koma hingað og leika gegn Fram en ég á marga góða vini í liðinu eftir að hafa átt góðan tíma hjá félaginu," sagði Stephen Nielsen, markvörður Vals og besti maður liðsins í sigurleik á Fram, 25:20, í Olís-deildinni í handknattleik í Framhúsinu í kvöld.
Stephen sem lék í marki Fram í fyrra mætti nú sínum gömlu samherjum í fyrsta sinn í deildarleik. Hann varði 19 skot, mörg hver þegar Fram-liðið var við það jafna metin.
„Ég fyrst og fremst glaður að fá tvö stig," sagði Stephen en nánar er rætt við hann á meðfylgjandi myndskeiði.