Elías Már Halldórsson hefur náð samkomulagi við handknattleiksdeild Hauka um að snúa aftur til félagsins og spila með Haukum næsta eitt og hálfa árið.
Elías fór frá Haukum til Akureyrar í sumar en ákvað að rifta samningi sínum við Akureyringa.
Elías skoraði 42 mörk í 15 leikjum fyrir Akureyringa í vetur. Á síðasta tímabili var hann þriðji markahæsti leikmaður Hauka með 76 mörk í 19 leikjum.