West Wien, liðið sem Erlingur Richardsson þjálfar í austurrísku 1. deildinni í handknattleik, vann í gærkvöldi neðsta lið deildarinnar, SU Falkensteiner Katschberg - St.Pölten, 36:26, örugglega á útivelli. Lærisveinar Erlings voru níu mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:9.
West Wien er í þriðja sæti deildarinnar um þessar mundir með 28 stig eftir 18 leiki. Alpla HC Hard er í efsta sætinu með 29 stig. HC Fivers er í öðru sæti með 28 stig en stendur betur að vígi gagnvart West Wien á innbyrðisleikjum.