Vignir markahæstur í Íslendingaslag

Vignir Svavarsson.
Vignir Svavarsson. mbl.is/Golli

Landsliðsmaðurinn Vignir Svavarsson fór mikinn fyrir Midtjylland í leiknum við Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld, en Mors-Thy fór með sigur af hólmi, 33:31.

Vignir skoraði átta mörk í leiknum og var markahæstur í sínu liði ásamt Jacob Östergaard. Félagi hans í landsliðinu, Guðmundur Árni Ólafsson, skoraði 3 mörk fyrir Mors-Thy og Agnar Smári Jónsson skoraði eitt. Róbert Aron Hostert komst hins vegar ekki á blað.

Mors-Thy komst með sigrinum upp að hlið Midtjylland í 9.-10. sæti en liðin eru með 12 stig eftir 14 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert