Alfreð Örn Finnsson, þjálfari Vals var að vonum svekktur eftir 26:19 tap gegn Fram í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.
Hann segir sjö marka tap ekki gefa rétta mynd af leiknum, þar sem hann sá margt jákvætt í leik síns liðs.
„Mér finnst grátlegt að tapa þessu með sjö mörkum. Mér fannst það ekki munurinn í dag. Ég var ánægður með mjög margt í dag. Það var góð barátta í okkur, við vorum að reyna að keyra á þær."
„Hægri vængurinn var mjög öflugur hjá Kristine og Díönu Dögg og þá sérstaklega Díönu Dögg, þetta er svekkjandi niðurstaða."
<br/>Fram komst í 6:1 í upphafi leiks og var Alfreð vissulega svekktur við byrjunina. Hann var þó ánægður með að sitt lið gafst ekki upp og komst inn í leikinn í seinni hálfleik.
„Við minnkuðum niður í tvö og gátum minnkaði í eitt, einu sinni eða tvisvar í leiknum en það er klaufalegt að byrja illa gegn jafn sterku liði og Fram. Við komum til baka og komumst inn í leikinn, það var jákvætt en svo kom kafli í seinni hálfleik sem varð okkur að falli," sagði Alfreð.