Eins og fram kom í fjölmiðlum í gær hefur Snorri Steinn Guðjónsson ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna og binda enda á 15 ára farsælan feril sinn með landsliðinu.
Aron Pálmarsson, samherji Snorra í landsliðinu til margra ára og leikmaður ungverska meistaraliðsins Veszprém, sendir Snorra góðar kveðjur á twitter-síðu sinni.
„Snorri er einn besti leikstjórnandi sem við höfum átt, einn sá besti sem ég hef spilað með. Þvílíkur handboltaheili, geggjaður ferill!“ skrifar Aron.