Sigtryggur Rúnarsson skoraði sjö mörk fyrir Aue sem tapaði fyrir Rimpar í þýsku B-deildinni í handknattleik í dag, 28:26. Hann var markahæstur í sínu liði en það dugði skammt. Hvorki Árni Þór Sigryggsson né Bjarki Már Gunnarsson komust á blað hjá Aue.
Huttenberg vann nauman 28:27 sigur á Ferndorf. Ragnar Jóhannsson skoraði fjögur mörk fyrir Huttenberg og Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar liðið. Fannar Friðgeirsson skoraði sömuleiðis fjögur mörk fyrir Hamm sem vann Rostock, 29:26.
Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Eisenach sem tapaði fyrir Bad Scwartau, 26:22, og Oddur Gretarsson setti eitt fyrir Emsdetten sem gerði 25:25 jafntefli við Essen.
Loks varði Aron Rafn Eðvarðsson fjögur skot hjá Bietigheim sem tapaði fyrir Konstanz, 29:27.