Arna Sif Pálsdóttir og Karen Knútsdóttir lögðu hvor um sig þung lóð á vogarskálina í 31:27-sigri Nice gegn Dijon í 15. umferð frönsku efstu deildarinnar í handbolta kvenna í kvöld.
Arna Sif skoraði sex mörk fyrir Nice og Karen bætti við fjórum mörkum fyrir liðið. Nice hefur 24 stig eftir þennan sigur og situr í níunda sæti deildarinnar.