Bjarki Már Elísson skoraði sex mörk fyrir Füchse Berlin sem vann slóvenska félagið Ribnica í EHF-bikar karla í handbolta í dag. Lokatölur voru 38:30.
Füchse Berlin hefur unnið alla fimm leiki sína í keppninni fram að þessu og er toppsæti riðilsins nú öruggt. Tvö efstu liðin í riðlunum fjórum fara í 8-liða úrslitin. Füchse Berlin mætir Saint-Raphael í síðasta leik riðilsins í byrjun apríl.