Stjarnan lagði Gróttu að velli, 29:25, þegar liðin mættust í oddaleik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handbolta í Mýrinni í dag. Stjarnan hafði betur í einvíginu, 3:2, og mætir því Fram í úrslitaviðureign deildarinnar.
Helena Rut Örvarsdóttir og Rakel Dögg Bragadóttir voru markahæstar í liði Stjörnunnar með sex mörk hvor. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Laufey Ásta Guðmundsdóttir voru hins vegar atkvæðamestar í liði Gróttu með fimm mörk hvor.
Leikurinn var afar sveiflukenndur, en fantafín frammistaða Stjörnunnar í fyrri hálfleik varð til þess að liðið fór með níu marka forystu inn í seinni hálfleikinn. Hægt og bítandi náði Grótta hins vegar að koma sér inn í leikinn og minnkaði muninn í eitt mark.
Stjarnan var hins vegar sterkari aðilinn á lokakafla leiksins og tókst að innbyrða sigurinn. Grótta sem er ríkjandi Íslandsmeistari, en nú er ljóst að liðinu mun ekki takast að verja titil sinn. Stjarnan hefur beðið ósigur í úrslitaviðureigninni um Íslandsmeistaratitilinn síðustu fjögur ár.
Stjarnan | 29:25 | Grótta | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Leik lokið Leik lokið með 29:25-sigri Stjörnunnar. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |