„Við vorum allan tímann að reyna en við vorum á köflum að flýta okkur of mikið og létum dómarana fara í taugarnar á okkur,“ sagði Árni Bragi Eyjólfsson, leikmaður Aftureldingar, við mbl.is eftir tapið gegn Val, 28:23, í Olís-deildinni í handknattleik að Varmá í kvöld.
„Mér fannst dómararnir ekki halda sömu línunni allan leikinn en þegar á öllu á botninn er hvolft þá voru Valsmennirnir bara sterkari heldur en við í kvöld og fengu sanngjörn tvö stig.
Við getum tekið eitthvað gott úr þessu eins og varnarleikinn sem var góður lengi vel og Lárus varði vel í markinu. Við fórum illa með mörg góð færi og það getur þú ekki leyft þér á móti jafnsterku liði og Valur er með.