Stórsigrar Hauka og Þróttar

mbl.is/Eva Björk

Þróttur og Haukar U unnu stórsigra í 1. deild karla í handknattleik, Grill 66-deildinni, en tveir leikir fóru fram í gærkvöldi.

Þróttur fékk Hvíta riddarann í heimsókn. Eftir að hafa haft tíu marka forskot í hálfleik, 19:9, vann Þróttur 20 marka sigur 35:15. Styrmir Sigurðarson og Kristján Þór Karlsson skoruðu 7 mörk fyrir Þrótt sem komst upp í fjórða sætið með sigrinum, er þar með 10 stig eftir 9 leiki, en Hvíti riddarinn er án stiga á botninum.

Haukar U heimsóttu Stjörnuna U. Haukar voru sex mörkum yfir í hálfleik 15:9 og unnu að lokum stórsigur 34:18. Orri Freyr Þorkelsson skoraði 10 mörk fyrir Hauka, sem eru stigi á eftir Þrótti í 5. sætinu en Stjarnan er með 6 stig í 7. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert