Daníel Freyr Andrésson átti góðan leik í 24:18-sigri Ricoh á útivelli gegn Redbergslids í sænsku A-deildinni í handbolta í dag. Hann varði 15 skot og var með 48% markvörslu.
Ricoch hefur verið á fínni siglinu í deildinni upp á síðkastið og unnið sex af síðustu átta leikjum sínum eftir ellefu töp í röð þar á undan. Liðið er í níunda sæti með tólf stig, átta stigum frá sæti í úrslitakeppninni eftir 18 leiki.