Arnór Atlason og Janus Daði Smárason sem leika undir stjórn Arons Kristjánssonar hjá Aalborg unnu öruggan 30:20-sigur þegar liðið mætti Ólafi Gústafssyni og samherjum hans hjá Kolding í 16. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta karla í dag.
Arnór skoraði þrjú mörk fyrir Aalborg í leiknum og Janus Daði skoraði tvö mörk. Ólafur komst ekki á blað fyrir Kolding sem á aldrei til sólar í leiknum. Aalborg náði strax frumkvæðinu í leiknum og leiddi með sjö mörkum í hálfleik. Niðurstaðan varð svo tíu marka sigur.
Íslendingarnir í liði Århus skoruðu alls sex mörk í 33:29-sigri liðsins gegn SönderjyskE. Sigvaldi Guðjónsson skoraði þrjú þeirra, Ómar Ingi Magnússon tvö og Róbert Gunnarsson bætti einu marki við í sarpinn.
Aalborg er í fimmta sæti deildarinnar með 18 stig eftir þennan sigur, en Kolding er hins vegar í áttunda sæti deildarinnar með 15 stig. Århus er líkt og Kolding með 15 stig eftir þennan sigur, en Århus er sæti ofar þar sem liði hefur betri markatölu en Kolding.