Norðankonur einar á toppnum

Martha Hermannsdóttir var markahæst í dag.
Martha Hermannsdóttir var markahæst í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

KA/Þór hafði betur gegn ungmennaliði Vals er liðin mættust í Grill 66 deildinni, 1. deild kvenna í handbolta í dag, 26:19. Staðan í hálfleik var 12:8, KA/Þór í vil.

Martha Hermannsdóttir átti góðan leik fyrir KA/Þór og skoraði sjö mörk og þær Aldís Ásta Hreinsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Kristín Arndís Ólafsdóttir var markahæst í liði Vals með fimm mörk. 

Með sigrinum fór KA/Þór upp í 17 stig og hefur nú tveggja stiga forskoti á toppi deildarinnar. Valsliðið er á botninum án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert