Landsliðsmarkmaðurinn Hafdís Renötudóttir mun ganga í raðir norska handboltafélagsins Sola fyrir næsta tímabil. Sola er sem stendur í 7. sæti, en Hafdís leikur með SønderjyskE í B-deild Danmerkur.
Hafdís lék með Fram og Stjörnunni hér á landi, áður en hún fór til Danmerkur, og varð hún m.a bikarmeistari með Stjörnunni á síðustu leiktíð. Hún verður 21 árs á þessu ári og lék hún sína fyrstu A-landsleiki gegn Hollandi í mars á síðasta ári.
Helena Rut Örvarsdóttir, fyrrverandi liðsfélagi hennar hjá Stjörnunni, leikur með Byåsen í sömu deild. Byåsen er í 6. sæti, þremur stigum á undan Sola.