ÍBV sigraði Hauka, 24:22, í æsispennandi fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld.
Eyjamenn voru yfir nær allan leikinn og staðan var 12:8 í hálfleik. ÍBV komst í 15:10 en þá komust Haukar inn í leikinn með fimm mörkum í röð, 15:15, og þeir náðu síðan tvívegis tveggja marka forystu í kjölfarið.
ÍBV skoraði þá þrjú mörk í röð, 21:20. Haukar jöfnuðu tvisvar en Kári Kristján Kristjánsson og Andri Heimir Friðriksson skoruðu tvö síðustu mörkin og tryggðu Eyjamönnum sigurinn.
Sigurbergur Sveinsson skoraði 7 mörk fyrir ÍBV, Agnar Smári Jónsson 5 og Róbert Aron Hostert 5, og Aron Rafn Eðvarðsson varði 19 skot í markinu.
Daníel Þór Ingason skoraði 9 mörk fyrir Hauka, Adam Haukur Baumruk 7 og Björgvin Páll Gústavsson varði 16 skot.
Liðin mætast ekki aftur fyrr en fimmtudaginn 3. maí vegna Evrópuleiks Eyjamanna í Rúmeníu á sunnudaginn kemur.