Handknattleiksmaðurinn Atli Már Báruson leikur ekki meira með Haukum á þessu tímabili.
Fram kemur í frétt á Vísi að Atli Már sé handarbrotinn en hann meiddist á æfingu fyrir fyrsta leikinn á móti ÍBV í undanúrslitum Olís-deildarinnar sem Eyjamenn höfðu betur í, 22:20, í gærkvöld.
Atli Már gekk í raðir Haukanna frá Íslandsmeisturum Vals fyrir tímabilið og skoraði 70 mörk í 22 leikjum með Hafnarfjarðarliðinu í deildarkeppninni.