Elverum tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik norska bikarsins í handbolta með sannfærandi 37:26-sigri á Bækkelaget á útivelli.
Þráinn Orri Jónsson var sterkur hjá Elverum og skoraði sex mörk en Sigvaldi Guðjónsson komst ekki á blað að þessu sinni.
Elverum er á toppi norsku úrvalsdeildarinnar með 13 stig eftir átta leiki og hefur liðið unnið fjóra af sjö leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu. Þar er Elverum í fjórða sæti D-riðils og með raunhæfa möguleika á að komast í útsláttakeppnina.