Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar hans hjá GOG unnu góðan 24:19-útisigur á Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Óðinn var markahæsti leikmaður GOG með fimm mörk úr sjö skotum.
GOG er í mikilli toppbaráttu og er liðið aðeins stigi frá toppliði Aalborg, með 27 stig eftir 17 leki. Kolding og SönderjyskE áttust svo við í Íslendingaslag í Kolding. Sönderjyske hafði betur, 32:29. Arnar Birkir Hálfdánarson skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE en Ólafur Gústafsson komst ekki á blað hjá Kolding.
Sönderjyske er í áttunda sæti deildarinnar með 17 stig og Kolding í tíunda sæti með 12 stig.