Landsliðsmarkvörðurinn Hafdís Renötudóttir átti stórleik með liðinu Boden í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.
Hafdís varði alls 21 skot í leiknum, þar af eitt vítakast, og var með 45% markvörslu en frábær leikur hennar dugði þó ekki til því Boden tapaði á útivelli fyrir Lugi 29:27.
Hafdís og stöllur hennar í Boden eru í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins 5 stig eftir 14 umferðir en Lugi er í fimmta sætinu með 14 stig. Hafdís gekk í raðir Boden fyrir tímabilið frá danska liðinu SønderjyskE.