Handknattleiksdeild ÍBV hefur gert nýjan tveggja ára samning við línumanninn Kára Kristján Kristjánsson. Félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni.
Kári hóf feril sinn með ÍBV og lék þar til 2005. Þá fór hann til Hauka og varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari. Hann varð svo Íslands-, bikar- og deildarmeistari með ÍBV fyrir ári síðan.
Hann hefur leikið sem atvinnumaður í Sviss, Þýskalandi og Danmörku og hefur leikið fjölda landsleikja. Kári skoraði 104 mörk í 26 leikjum með ÍBV á síðasta tímabili.