Aðalsteinn Eyjólfsson hættir sem þjálfari þýska handknattleiksliðinu Erlangen í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út.
Félagið greinir frá þessu á heimasíðu sinni í dag. Ákveðið hefur verið að við starfi Aðalsteins taki Michael Haaß sem nú er fyrirliði liðsins.
Erlangen er í 12. sæti 1. deildarinnar og hefur siglt lygnan sjó undir stjórn Aðalsteins sem tók við á fyrri hluta tímabilsins 2017-2018. Hann gerði síðar nýjan samning eða í janúar á þessu ári sem gildir fram á næsta sumar eins og áður segir.
Aðalsteinn hefur verið lengi í Þýskalandi frá 2008. Hann þjálfaði áður Hüttenberg og fór liðið þá upp um tvær deildir á tveimur árum. Þar áður eða frá 2010-2014 var hann hjá Eisenach. Ennfremur stýrði hann Kassel frá 2008-2010.