Eyjamenn áttu ekki í vandræðum með að tryggja sér farseðilinn í 8-liða úrslitin í Coca-Cola-bikarkeppni karla í handknattleik í kvöld.
ÍBV mætti Þrótti Reykjavík í Laugardalshöllinni í kvöld og vann þar 15 marka sigur 33:18 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17:6.
Egidijus Mikalonis var markahæstur í liði Þróttara með 8 mörk og þeir Styrmir Sigurðarson, Aron Valur Jóhannsson og Aron Heiðar Gunnarsson skoruðu 2 mörk hver.
Elliði Snær Viðarsson skoraði 8 mörk fyrir Eyjamenn, Kristján Örn Kristjánsson skoraði 5 og þeir Friðrik Hólm Jónsson og Kári Kristján Kristjánsson skoruðu 4 mörk hvor.