Guðjón Valur Sigurðsson og samherjar hans í franska meistaraliðinu Paris SG héldu sigurgöngu sinni áfram í frönsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.
Paris SG sótti botnlið Créteil heim og innbyrti tíu marka sigur 38:28. Guðjón Valur skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum fyrir Parísarliðið sem hefur unnið alla tíu leiki sína og er með sex stiga forskot í toppsætinu.
Nikola Karabatic var markahæstur í liði Paris SG með 7 mörk og Mikkel Hansen kom næstur með 6 mörk.