Úrvalsdeildarlið HK vann öruggan sigur gegn 1. deildarliði Fjölnis/Fylkis í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili.
HK vann stósigur í Kórnum 27:15 og er komið með annan fótinn í úrslitarimmuna um laust sæti í efstu deild á næsta tímabili.
Í hinni viðureign kvöldsins vann Grótta lið ÍR á Seltjarnarnesi eftir spennandi leik 16:15. Spennan í þeirri rimmu er því öllu meiri en bæði lið léku í 1. deild, Grill66 deildinni í vetur.