Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk fyrir Kielce þegar liðið heimsótti Aalborg í Íslendingaslag í B-riðli Meistaradeildarinnar í handknattleik í Danmörku í kvöld.
Leiknum lauk með tveggja marka sigri Kielce, 30:28, en Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari danska liðsins.
Kielce er með 4 stig í þriðja sæti riðilsins en Aalborg er í öðru sætinu, einnig með 4 stig en bæði lið hafa leikið þrjá leiki í keppninni á tímabilinu.
Þá tapaði Magdeburg með sjö marka mun þegar liðið fékk París SG í heimsókn í A-riðli keppninnar í Þýskalandi.
Ómar Ingi Magnússon var næstmarkahæstur í liði Magdeburgar með 5 mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt en leiknum lauk með 29:22-sigri París SG.
Magdeburg er með 4 stig í þriðja sæti riðilsins, tveimur stigum minna en topplið Veszprém.