Skara hafði betur gegn Heid, 34:18, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.
Íslendingarnir þrír í liði Skara skoruðu samtals tíu mörk og áttu því sinn þátt í sannfærandi sigri.
Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði fimm mörk fyrir Sara, Ásdís Guðmundsdóttir bætti við fjórum og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir gerði eitt.
Skara er í áttunda sæti deildarinnar með sex stig eftir átta leiki.